Argentína steikhús býður þig innilega velkominn í hlýleg húsakynni okkar að Barónsstíg 11 A í hjarta Reykjavíkur. Það er einlæg ósk okkar hjá Argentínu steikhúsi að þú njótir þeirra fjölbreyttu veitinga sem við höfum á boðstólum.
Argentínumenn hafa langa hefð í glóðarsteikingu enda er hvergi í veröldinni glóðað af meiri elju en einmitt þar. Allir kjöt- og fiskréttir Argentínu steikhúss eru glóðasteikir yfir viðarkolum á argentínska vísu og af því er nafn steikhússins dregið.
Á Argentínu steikhúsi leggjum við höfuðþungann á að veita persónulega og þægilega þjónustu. Við hlökkum til að þjóna þér til borðs og bjóða þér að njóta þeirra veitinga sem hafa borið hróður okkar svo víða. Opið: Sunnudaga – fimmtudaga 18:00 – 24:00 Föstudaga og laugardaga 17:30 - 01:00 Eldhúsið lokar 1 ½ tíma fyrir lokun
Borðapantanir í síma 551 9555 eftir kl. 14:00
Netfang: salur@argentina.is
Argentína Steikhús Barónsstíg 11A 101 Reykjavík Sími: 551 9555
|
|